Við hjá Smartmedia erum að bjóða upp á samþættingarlausnir á milli bókhaldskerfi DK hugbúnaðar og Shopify vefverslunarkerfisins.
Markmið þessarar lausnar er að einfalda fyrirtækjum sem halda úti netverslun að halda utan um rekstur sinn. Með tengingu við netverslun þá sækjum við upplýsingar úr bókhaldskerfi DK og sendum yfir í vefumsjónarkerfið en algengar upplýsingar eru.
- Vörunúmer
- Birgðir
- Vöruflokkar
- Eiginleikar
- Verð
Þegar sala á sér stað í netverslun þá sendist netpöntun yfir í DK sem útbýr sölureikning sem birtist undir reikningar (prentaður eða óprentaður). Við þetta stofnast reikningur ásamt því að birgðastaða helst rétt. Með sjálfvirku flæði upplýsinga í báðar áttir myndast mikill tímasparnaður og einfaldar allt utanumhald og rekstur á þinni netverslun.
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um þessa lausn sendu á okkur línu og við bjóðum þér í kaffibolla.
bóhaldskerfi, DK, Shopify, tengingar, vefverslun