Sælkerabúðin hefur lokið innleiðingu á samþættingarlausn Smartmedia sem var sérsniðinn að þeirra þörfum en þeir eru með netverslun í Shopify og desembermánuður er háannatími hjá Sælkerabúðinni enda sannkallaður veislumatur í boði hjá Sælkerunum.

Lausnin gerir þeim kleift að fá pantanir alla leið á rétta staði í DK og DKpos til afgreiðslu, þetta lágmarkar handavinnu á pöntunum úr netverslunum sem streyma inn með hraði í aðdraganda jóla.

 

„Það er frábært að hafa náð að loka þessari innleiðingu korter í jól með Smartmedia, ég mæli eindregið með að hafa samband við Smartmedia varðandi innleiðingar á samþættingum í DK, þeir hafa verið opnir fyrir öllum hugmyndum frá okkur, fljótir til taks og með framúrskarandi þjónustulund og samvinnu.“

Sverrir, fjármálastjóri Lúx Veitinga

Þannig fara viðskiptavinir inn á netverslun Sælkerabúðarinnar og velja sér trufflumarineraðar nautalundir eða fyllt lambalæri og setja í körfu ásamt því að velja afhendingardag hvort heldur heimsent eða sótt í verslun. Þessar upplýsingar fara beint inn í Dkpos kerfið við pöntun og birtist með öllum helstu upplýsingum um t.d afhendingardag og tíma, greiðslumáta, þ.e hvort greiða eigi í verslun og niður á sölumenn og greiðslulykla svo fátt eitt sé nefnt.

Það er okkur sönn ánægja að leysa þetta verkefni með Sælkerabúðinni fyrir þeirra hánnartíma og gera þeim og viðskiptavinum einfalt fyrir í jólaundirbúningi.

Gleðilega hátíð!

Fleiri fréttir