By Jón Andreas Gunnlaugsson
25.10.2019 15:28
By Jón Andreas Gunnlaugsson

Hjörvar Hermannsson
Stjórn Smartmedia hefur gert skipulagsbreytingar sem fela í sér að Hjörvar Hermannsson tekur við stöðu framkvæmdastjóra en hann hefur verið sölu- og verkefnastjóri hjá félaginu í tvö ár. Tóku breytingarnar gildi 15. október síðastliðinn.
Hjörvar kemur til með að bera ábyrgð á daglegum rekstri og styðja við þann mikla vöxt sem átt hefur sér stað í netverslun hér á landi undanfarin ár.
Hjörvar hefur lokið BS námi í viðskiptafræðum við Háskóla Íslands og MS gráðu í markaðsfræðum við Griffith University í Ástralíu. Áður starfaði Hjörvar sem verkefnastjóri á auglýsingastofunni PIPAR/TBWA.
Ásgeir Ingvarsson, sem gegndi stöðu framkvæmdastjóra, tekur við nýju hlutverki og leiðir uppbyggingu nýs veflausnasviðs ásamt því að taka sæti í stjórn félagsins.
Breytingar eru liður í því að efla stuðning Smartmedia við viðskiptavini sína í stafrænum umskiptum en fyrirtækið þjónustar yfir
140 íslensk smá- og heildsölufyrirtæki sem veita þjónustu sína í stórauknum mæli í gegnum netið.
“Ég er spenntur yfir komandi tímum en Smartmedia hefur verið að þróa netverslunarkerfi í rúman áratug sem er klæðskerasniðið að þörfum íslenskra fyrirtækja. Við munum halda áfram að leggja áherslu á að nýta áralanga reynslu starfsmanna á netverslunarmarkaði í að veita persónulega þjónustu og sérsniðnar lausnir fyrir okkar viðskiptavini. Smartmedia hefur verið í mikilli sókn í takt við vöxt í netverslun og ég er spenntur fyrir því að halda áfram á þeirri vegferð” segir Hjörvar Hermannsson.