Við hjá Smartmedia erum að bjóða uppá samþættingarlausnir á milli bókhaldskerfi Uniconta hugbúnaðar og Shopify eða WooCommerce vefverslunarkerfisins.
Markmið þessarar lausnar er að einfalda fyrirtækjum sem halda úti netverslun að halda utan um rekstur sinn. Með tengingu við netverslun þá sækjum við upplýsingar úr bókhaldskerfi Uniconta og sendum yfir í vefumsjónarkerfið en algengar upplýsingar eru.
Vörunúmer
Birgðir
Vöruflokkar
Eiginleikar
Verð
Þegar sala á sér stað í netverslun þá sendist netpöntun yfir í Uniconta sem útbýr sölureikning sem birtist undir reikningar (prentaður eða óprentaður). Við þetta stofnast reikningur ásamt því að birgðastaða helst rétt. Með sjálfvirku flæði upplýsinga í báðar áttir myndast mikill tímasparnaður og einfaldar allt utanumhald og rekstur á þinni netverslun.
Einnig bjóðum við upp á B2B lausnir fyrir heildsölur í netverslun en þá er innskráningarkerfi tengt við kennitölu / viðskiptamann í Uniconta. Innskráning á viðskiptamann býður upp á;
Afslættir á viðskiptamenn
Staðgreiðsla / reikningsviðskipti
Mínar síður
Hreyfingaryfirlit og reikningar
Ef þú hefur áhuga á að vita meira um þessar lausn þá sendiru á okkur línu og við bjóðum þér í kaffibolla.