Skrifstofuvörur fengu Smartmedia til að tengja Shopify vefverslun sína við Uniconta bókhaldskerfi með það að markmið að sölupantanir stofnist sjálfkrafa inn í Uniconta þegar að vara er seld í vefverslun.

Þegar vefverslun er tengd við bókhaldskerfi þá þarf að huga vel að ferlinu þegar sölupantanir / reikningar koma í gegn til að tryggja að upplýsingar komi rétt fram út frá þeim forsendum sem fyrirtækið setur upp.

Í tilfelli Skrifstofuvara fengum við upplýsingar um hvernig rekstri- og bókhaldsmálum er háttað og aðlöguðum í kjölfarið flæði upplýsinga út frá hvernig bóka ætti VSK, sendingarkostnað og hvernig viðskiptin stofnast í Uniconta.

„Á haustdögum 2021 tókum við í gagnið tengingu á milli Shopify og Uniconta frá Smartmedia. Tenging stofnar viðskiptavinina í Uniconta ef þeir eru ekki til fyrir ásamt því að stofna sölupantanir. Greiðslutegundin flyst yfir þannig ef viðskiptavinur greiddi t.d. með korti í Shopify þá erfist sú greiðslutegund yfir í sölupöntunina, sama gildir um millifærslur, reikningsviðskipti o.s.frv.

Með þessari tengingu hefur vinna við að stofna reikninga í Uniconta úr sölupöntunum í Shopify minnkað all verulega og þar með aukið skilvirkni okkar í afgreiðslu.“

– Jón framkvæmdarstjóri Skrifstofuvara

 

Kynntu þér Shopify tengingar Smartmedia hér

,

Fleiri fréttir