Samstarf Smartmedia & Altis: Woocommerce og DK kerfið
01.10.2024 15:07

Smartmedia og Altis hafa nú hafið samstarf sem miðar að því að samþætta WooCommerce verslunarkerfið við DK bókhalds- og birgðakerfið. Þessi samþætting kemur til með að umbreyta hvernig fyrirtæki vinna með vörur, verð, birgðir og tengd gögn í vefverslun.
Einföldun og sjálfvirkni
Markmið samþættingarinnar er að búa til sjálfvirkt flæði upplýsinga milli kerfanna. WooCommerce, eitt vinsælasta verslunarkerfið í dag, er nú tengt beint við DK kerfið, sem sér um skila réttum gögnum við hreyfingar í bókhaldi til birgðastýringar. Með þessu er hægt að:
- Lesa vörur, birgðir og verðupplýsingar beint úr DK kerfinu yfir í Woocommerce
- Samræma gögn sjálfkrafa bæði í vefverslun og verslun án þess að þurfa handvirkar uppfærslur.
- Auka áreiðanleika gagna, þar sem allar upplýsingar um vörur eru stöðugt uppfærðar í rauntíma.
Ávinningur fyrir Altis
Þetta samstarf einfaldar lífið fyrir eigendur Altis sem nota bæði WooCommerce og DK kerfið:
- Tímasparnaður: Engin þörf á handvirkri gagnaflutningi á milli kerfanna.
- Betri yfirsýn yfir sölur, vsk og aðrar upplýsingar tengt sölutölum á milli verslunar og vefs.
- Áreiðanleg birgðarstýring sem eru í stöðugri samræmingu á milli kerfa.
Framfarir í vefverslun
Samþættingin stuðlar einnig að því að fyrirtæki geta vaxið hraðar með sjálfvirkum kerfum sem leyfa meiri einbeitingu á viðskiptavinahliðinni og vöruþróun. Það er því ljóst að samstarf Smartmedia og Altis mun leiða til framfara í umsýslu vefverslunar auk þess að styrkja áreiðanleika í birgðastýringu og verðskráningu.
fréttir, verslanir