Orri ráðinn til Smartmedia

Orri Ársælsson hefur verið ráðinn til hugbúnaðarfyrirtækisins Smartmedia sem forritari. Smartmedia hefur undanfarið verið að þróa nýjar vörur fyrir innlendan og erlendan markað og mun Orri styðja við þá vegferð.

Orri lauk námi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og hefur síðan þá starfað hjá Parka sem framendaforritari.
Orri er ánægður að vera kominn til starfa Smartmedia “Mér líst mjög vel á Smartmedia og mér finnst vöruframboðið þeirra mjög spennandi og gaman að fá að koma inní þróunarteymið.”

Fleiri fréttir