Fyrirtækið Héðinshurðir (dótturfyrirtæki Héðins hf. selur bílskúrs- og iðnaðarhurðir og hafa gert í áraraðir með góðum árangri. Þau leituðu til Smartmedia í þeirri von að hanna og sérsmíða vef út frá verðstrúktúr Héðinshurða sem gæfi viðskiptavinum kost á að útfæra sína bílskúrs eða iðnaðarhurð upp á eigin spýtur og fá nákvæmt verð hverju sinnu. Áður fyrr sendu viðskiptavinir inn verðbeiðni út frá forsendum sem krafðist handavinnu sölufulltrúa við að handgera tilboð/verð út frá forsendum. Nú hefur sjálfvirkni á því verið komið á og vefurinn að sama skapi fallega hannaður og notendavænn þvert á öll snjalltæki.

Héðinshurðir

Viðskiptavinir geta nú unnið að því sjálfir að skoða hurðirnar myndrænt það sem hentar þeirra óskum ásamt því að fá nákvæmt verð hverju sinni eftir því sem þau setja inn forsendur, þ.e málin (breidd, lengd, bil til lofts) sem og gluggar, hurðir o.fl.

Hér má skoða og líta á nýja vefinn.

Fleiri fréttir