Vilt þú aukna sjálfvirkni í sölu með lágum langtíma tilkostnaði?
Ef ekki, þá máttu sleppa því að lesa lengra, en ef eitthvað af eftirfarandi á við um þig, þá ættir þú að lesa áfram:
– Þú ert ekki með póstlista
– Þú ert með póstlista sem er mjög lítið notaður
– Þú ert með póstlista án allrar sjálfvirkni
– Þú ert með póstlista sem þú veist ekkert hvað þú átt að gera við
Nú er í boði söludrifin póstlistalausn fyrir vefverslanir, sem býður upp á aukna sjálfvirkni í sölu og markaðsstarfi. Eitt af því sem er hvað mest spennandi við þennan möguleika er að það kostar ekkert að byrja og þú greiðir aðeins eftir fjölda notenda sem þú ert í samskiptum við. Hvort sem þú ert í Shopify, Woocommerce eða Smartwebber er hægt að setja upp sjálfvirka tengingu á milli kerfanna.
Lausnin um ræðir er í póstlistakerfinu Klaviyo. Með Klaviyo getur þú haldið utan um póstlistann þinn á þægilegan hátt og sett upp sjálfvirkni sem getur aukið sölu hjá þér og um leið þjónustað viðskiptavini þína betur.
Sem dæmi um sjálfvirkar tölvupóstsendingar sem við getum sett upp í kerfinu:
- Vara skilin eftir í körfu: Kerfið sendir sjálfvirka tilkynningu á netfang til að minna viðkomandi á að vörur séu enn í körfunni.
- Viðskiptavinur hefur ekki pantaði í X langan tíma: Kerfið minnir á þína vefverslun og bendir á nokkrar áhugaverðar vörur sem gætu hentað viðkomandi.
- Velkomin á póstlistann: Kerfið getur sent röð tölvupósta sem geta tekið á móti einstaklingum sem skrá sig á þinn póstlista, hvort sem það er með áhugaverðu fræðsluefni, ráðleggingum um hvernig er hægt að fá meira út úr vörunum þínum, eða sýna viðkomandi vinsælar vörur í vefversluninni.
Þar fyrir utan getur kerfið, sem dæmi tekið saman lista yfir þá viðskiptavini sem hafa pantað t.d. oftar en 10 hjá þér og þú getur sent þeim aðilum póst sérstaklega, því það getur vissulega verið gagnlegt að verðlauna okkar bestu viðskiptavini til að launa tryggðina. Möguleikarnir eru fjölmargir og mismunandi, en viljir þú framkvæma þessa einföldustu hluti, eins og að útbúa fjölpóst fyrir ákveðinn hluta af póstlistanum þínum, eða fyrir alla á póstlistanum, þá er það lítið mál með þessu kerfi. Þú getur meira að segja séð hversu mikil sala kemur í gegnum tölvupóstana sem þú sendir út og hversu margir keyptu.
Ef þú ert í hópi þeirra sem sjá alfarið um sín tækni- og markaðsmál, þá mælum við með því að þú kynnir þér þetta áhugaverða kerfi.
Ef þú aftur á móti hefur ekki tíma eða þekkingu til að nýta þér þessi tól, þá getur þú leitað til okkar og fengið ráðleggingar eða látið alfarið sjá um uppsetninguna fyrir þig.
