Bætiefnabúllan setti á dögunum upp tengingu á milli DK bókhalds- og birgðarkerfis og Woocommerce vefverslunar á dögunum í gegnum samþættingarlausn Smartmedia. Bætiefnabúllan býður upp á mikið úrval af heilsueflandi vörum sem njóta mikilla vinsælda á Íslandi í dag. Vefverslun Bætiefnabúllunar er sett upp í Woocommerce vefverslunarkerfinu.

Um verkefnið

 

Verkefnið gekk út á að einfalda umsýslu og auka sjálfvirkni í rekstri Bætiefnabúllunar með því að tengja saman vörurnar við DK birgðarkerfið við vefverslun þeirra í Woocommerce. Með því eru birgðir og verð að uppfærast í rauntíma ef viðskiptavinir kaupa í vefverslun eða verðbreytingar verða svo ekki þarf að uppfæra handvirkt. Við það minnka líkur á að selja vörur sem ekki eru til á lager og selja vörur á vitlausum verðum. Á sama tíma verður til reikningur eða sölupöntun sjálfvirkt inn í DK bókhaldshlutanum svo starfsmenn þurfa ekki að skrá það handvirkt.

Sérlausnir

 

Auk þess var smíðuð sér lausn þar sem Bætiefnabúllan vildi geta kynnt vörur á vefnum sem væru væntanlegar án þess að hefja sölu á vefnum en geta samt haldið tengingu við DK með gögn og birgðir.  Á næstu vikum förum við í enn fleiri sérvirkni og lausnir sem verður spennandi að vinna með og mun einfalda rekstur og auka sölu/þjónustu Bætiefnabúllunar ennþá meira.

 

Andri Bjarnason rekstrarstjóri Bætiefnabúllunar hafði þetta að segja um verkefnið:

 

„DK tengingin hjá Smartmedia hefur hjálpað okkur gríðarlega með vefverslunina okkar.

Með því að tengja DK við vefverslunina okkar hefur þetta sparað okkur mikla vinnu á hverjum degi með því að gera reikningana sjálfkrafa.

Þetta hefur líka einfaldað lager vinnuna hjá okkur þar sem hann er tengdur við DK svo við þurfum ekki lengur að skrá vörur af og á lager á netinu.  Við getum þannig sett tilboð í gang og ekki þurft að hafa áhyggjur um að selja umfram lager magn.

Það er búið að vera mjög einfalt og þægilegt að vinna með Smartmedia. Þau eru mjög góð í að leiðbeina í gegnum ferlið og eru mjög fljót að svara spurningum.

Þau finna fljótt lausnir sem henta okkur og það tók enga stund að virkja/bæta þeim á síðuna“

 

Arnar Jónsson sölu- og verkefnastjóri Smartmedia hafði þetta um samstarfið að segja:

 

„Það er búið að vera virkilega skemmtilegt að fara í samstarf með Bætiefnabúllunni og það hefur gengið afskaplega vel.
Þau eru metnaðarfull og opin fyrir því að prófa nýja hluti sem er alltaf verðmætur eiginleiki þegar unnið er með hugbúnaðarteymi Smartmedia“

Fleiri fréttir