Fá tilboð

Vefsíðugerð: Sérhannaðar vefsíður

Þarftu sérhannaða vefsíðu en heldur að það kosti fleiri hundruð þúsund að láta sérhanna og forrita þannig síðu? Það getur vel verið að það sé þannig einhversstaðar en hjá Smartmedia er það ekki þannig. Okkar mottó er ekki borga of mikið!

Hafðu samband við okkur og leyfðu okkur gefa þér tilboð í sérhannaða síðu sem inniheldur þau kerfi sem að við teljum að þú þurfið miðað við þínar hugmyndir. Í dag eru fjölmargir viðskiptavinir Smartmedia sem hafa valið þá leið að láta okkur sérhanna síðu og við viljum bæta þér í þann hóp.
Ekki hika við að hafa samband því þú tapar ekki á því að fá tilboð þér að kostnaðarlausu.
 
 
Vefstjóri
Íslenskt viðmót með vefstjóra. Í vefstjóranum eru stofnaðar yfirsíður, undirsíður, settur inn texti/upplýsingar um þjónustu/fyrirtækið svo eitthvað sé nefnt. Í vefstjóranum geturðu t.d. sett in tengla auðveldlega, sett inn myndbönd frá youtube (embedded media) ofl.
Fréttakerfi
Í fréttakerfinu er hægt að skrifa fréttir, setja mynd með, dagsetja fréttir (t.d. fram í tímann). Fréttaskrif eru mjög öflugt tól til að halda vefsíðunni/heimasíðunni þinni ferskri og lifandi.
Skráarstjóri
Í skráarstjóranum getur þú sett inn öll þau skjöl sem þú vilt geyma eða gefa öðrum aðgang að. Þá erum við að tala um skjöl eins og word,excel,pdf og svo framvegis. Öll skjöl í skráarstjóranum geturðu svo tengt (linkað) við texta á heimasíðunni.
Myndakerfi
Í myndakerfi getur þú stofnað möppur undir þín myndasöfn. Mjög auðvelt er að hlaða inn t.d. miklu magni af myndum með einu músarklikki (CTRL + A) og kerfið sér um að dæla myndunum inn. Þú getur svo valið hvaða myndasöfn eiga að birtast á heimasíðunni.
Teljari
Teljarinn er mikilvægt tól. Smartwebber vefumsjónarkerfið telur t.d. allar lesningar á fréttum. Við mælum með að allir notist við Google analytics sem hjálpar þér t.d. að sjá hversu margar heimsóknir þú færð, hvaða síður eru skoðaðar, frá hvaða landi viðkomandi kemur og margt fleirra. Í Smartwebber vefumsjónarkerfinu geturðu t.d. sett sjálfur inn teljara kóða frá google analytics.
1 gb pláss f. Zimbra tölvupóst
Zimbra tölvupóstkerfið er fjarvinnslupóstur ekki ósvipaður og Microsoft Exchange. Í honum geturðu komist í póstinn þinn hvar sem er og hvenær sem er. Tekið er tvöfalt afrit af póstinum á hverri nóttu þannig að enginn póstur ætti að glatast ef að t.d. tölvan þín hrynur eða henni stolið. Hægt er að lesa meira um eiginleika Zimbru hér.
1 gb hýsing á léni
Allir okkar netþjónar eru hýstir á Íslandi í sérútbúnum vélarsal með varaflgjafa og tvöföldu kælikerfi.
 
 
      
 
Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar í síma 588 4100 eða með því að senda tölvupóst á info@smartmedia.is og við komum þér á netið á nokkrum dögum.